Þjónustuskilmálar
Vöruskil
Við kaup í netverslun þá hefur þú rétt á að skila vörunni í 14 daga frá því að þú fékst hana afhenta. Frestur til að skila vörunni til okkar aftur rennur út 14 dögum eftir afhendingu. Til þess að nýta réttinn þarft þú að tilkynna okkur ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu t.d. með bréfi eða tölvupósti á netfangið thomsen@thomsenrvk.is . Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn rennur út.
Þú hefur val um að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða endurgreiðslu í gegnum þann greiðslumáta sem notaður var við kaupin.
Athugið að til þess að hægt sé að skila vöru þá þarf hún að vera í ónotuð og í upprunalegu ástandi. Merkingar skulu vera til staðar á vörunni og upprunalega pakkningar óskaddaðar. Skór skulu vera í skókassa.
Thomsen Reykjavík ber ekki ábyrgð á vörum í endursendingarferli fyrr en þær hafa borist okkur.
Vöruskipti
Heimilt er að skipta vörum í verslun okkar, svo framarlega sem varan er enn í sölu og ekki komin á útsölu. Hægt er að hafa samband við Thomsen Reykjavík í gegnum síma eða tölvupóst og óska eftir vöruskiptum. Einnig er hægt að koma með vöruna í verslun okkar.
Undantekningar
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu. Einungis er hægt að skipta útsöluvörum í aðrar útsöluvörur.
Gallaðar vörur
Vinsamlegast kannaðu ástand vörunnar við afhendingu. Ef þú telur að varan uppfylli ekki þau skilyrði sem hún á að gera, sé gölluð eða skemmd hafðu samband við okkur strax og við reynum að leysa úr málinu hratt og örugglega. Sé um galla að ræða bætum við vöruna með viðgerð, skiptum og eða endurgreiðum eftir því sem við á í hverju tilfelli fyrir sig og í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003.
