Freenote Cloth
Freenote Cloth framleiðir öll sín föt í Bandaríkjunum, eingöngu úr hágæða efnum. Ástæðan fyrir því að við völdum þennan framleiðanda inn í verslunina okkar er ástríða þeirra fyrir einstaklega vönduðu handverki, vönduðum frágangi og klassískum sniðum.
Thomsen Reykjavík
Icelandic Design in the heart of Reykjavík
Thomsen Reykjavík er nýtt íslenskt merki og fataverslun sem opnaði haustið 2024. Við bjóðum upp á allt frá sokkum upp í sérsaumuð jakkaföt. Skyrtur, yfirhafnir og peysur úr vönduðum efnum og fallega aukahluti eins og sokka, húfur og belti. Verið velkomin í verslun okkar á Hafnartorgi.





























































